Klukkan
08.12.2007 00:41:28 / cavs

Askur 7 ára!

8. desember 2007

Askur 7 ára!


Já í dag 8. desember er hann Askur minn orðinn 7 ára öldungur!

Jahérna, mér finnst svo stutt síðan við keyrðum alla leið til Dalvíkur að sækja þennan sæta strák í brjáluðu veðri, en þá var hann aðeins tíu vikna gamall.

Ég man þear við komum og sóttum hann, mér fannst hann fallegasti hvolpur sem ég hafði séð og trúði því varla að hann yrði minn. Ég var tólf ára og ég man að ég og systir mín vorum frammi með hundunum á meðan mamma og pabbi sátu inni í eldhúsi með ræktandanum og fóru yfir öll nauðsynleg atriði. Ræktandinn hans Asks, sagði okkur svo ýmislegt í sambandi við hann og hunda almennt. Ég man að stundum skildi ég ekkert hvað hún var að tala um þá þó ég skilji það nú töluvert betur í dag.

Við fengum betra veður á leiðinni til baka og var Askur virkilega þægur alla leiðina heim í bílnum og það heyrðist ekki bofs í honum. Við stoppuðum nú samt einu sinni til að láta Ask pissa og við vorum nú öll frekar monntin með þennan fallega hvolp sem við pössuðum svo vel, eins og hann væri úr postulíni.

Þegar heim var komið var allt tilbúið, ræktandinn hafði leiðbeint okkur vel símleiðis hvað þyrfti að vera til staðar fyrir hvolpinn þegar hann kæmi og það var að sjálfsögðu allt keypt, og meira til.

Við rúmið mitt var pabbi búinn að búa til afskaplega fína grind þar sem Askur átti að sofa. Í grindinni voru ýmsar nauðsynjar eins og búr með teppi, vatnsdallur, leikföng, nagbein og eflaust ýmislegt fleira.
Um kvöldið þegar við Askur áttum svo að fara að sofa, var hann settur í fínu fínu grindina. Askur hoppaði uppá hana og heyrðist eitt lítið ofursætt *áff*. Hann horfði á mig með stóru fallegu brúnu augunum sínum og ég tók hann í fangið. Ég man að mamma sagði "æjj, greyið, hann saknar svo mömmu sinnar, við verðum að leifa honum að sofa uppí, bara í nótt". Ég lét nú ekki segja mér það tvisvar og við Askur fórum að sofa, uppí mínu rúmi. Ég þarf svo eflaust ekki að nefna það, en þar hefur Askur sofið síðan þá.



Askur hefur alla tíð verið afskaplega þæginlegur hundur og frábært að fá eintak eins og hann svona sem fyrsta hund. Ákveðin að ýmsu leiti jú, en gott að kenna honum og eiga við hann svona almennt. Jú, hann nagaði eins og einn skó og nýja testamentið á ákveðnu tímabili og hefur alla tíð verið fyrstur til að setjast uppá stól við matarborðið þegar mamma kallar í mat, en svona, ekkert alvarlegt.

Askur fór á hvolpanámskeið hjá HRFÍ og stóð sig bara nokkuð vel.

Askur hefur alltaf fylgt okkur allt (nema erlendis auðvitað;). Hann hefur farið ýmislegt á þessum 7 árum sínum þvers og kruss um landið. Eitt sinn er við vorum á gistiheimili úti á landi varð ég veik og var rúmliggjandi þar í tvo daga og bara svaf. Askur lá hjá mér allan tímann, nema þegar aðrir fjölskyldumeðlimir dróu hann út að pissa eða fengu hann til að drekka. Hann leit ekki einu sinni við mat fyrr en ég fór að borða aftur. Þessi hundur finnur það enn í dag ef eitthvað er ekki í lagi og ef mér líður illa víkur hann ekki frá mér.

Segi svo bara, til hamingju með afmælið Askur minn, við erum búin að eiga frábær ár saman og ég vona að við fáum sem flest til viðbótar. 


Nokkrar myndir:

Askur er lengst til vinstri, hann og systkynin að fá smá sopa frá mömmu.


um 4-5 mánaða


2 ára


3 ára


4 ára


5 ára


6 ára

http://im1.shutterfly.com/procserv/47b7cc26b3127cceb124dbcdf99d00000026108AcMWbZi1ZNT
7 ára gamall, mynd tekin áðan. Miðavið útlit og hve hraustur hann enn er gæti hann þessvegna verið fjögurra ára.


» 10 hafa sagt sína skoðun


Textabox
Vinsamlegast ekki taka myndir eða annað án leyfis af síðunni.