Ætluðum bara láta vita af okkur.
Skólinn er byrjaður á fullu aftur og við höfum einnig verið að standa í smá mini flutningum, við Guðrún og hundarnir vorum að flytja okkur niður í kjallaraíbúðina og höfum því núna heila 80 fm íbúð fyrir okkur og sér inngang.
Við erum búin að koma okkur ágætlega fyrir og þetta verður bara voða cosy, hundarnir eru allir mjög sáttir við breytinguna, enda svosem ekki langt að fara og sami garður.
Við Góa erum búnar að vera á grunnnámskeiði hjá hundaskóla HRFÍ og það er bara ofsalega gaman hjá okkur þar, búnar að mæta þrisvar sinnum og ég held bara svei mér þá að hún sé elst í hópnum okkar.
Því miður eru ekki komnar neinar myndir ennþá, en við þurfum að fara að drífa okkur í því að taka myndavélina með í einn göngutúrinn, en við erum að sjálfsögðu búin að vera mikið dugleg að fara út þrátt fyrir rigninguna undanfarið.
Það er búið að skrá Góu á sýninguna sem verður í lok september og systur hennar Hnotu og Mónu líka, ég get ekki annað sagt en að mér hlakki mikið til að sjá systurnar allar saman í opna flokknum.