16.10.2008 13:43:30 / cavs
Stutt og laggott
Jæja, stutt blogg svona snöggvarst.
Helstu fréttirnar núna eru af henni Góu litlu sem er á bullandi lóðaríi núna.
Skvísan er búin að vera með mér á grunnnámskeiði og við vorum að fá niðurstöðurnar um hvernig við stóðum okkur í pósti. Góa fékk 8,8 í verklega og ég fékk 10 í bóklega.
Okkur gekk voða vel á námskeiðinu og erum að spá í að skella okkur á annað eftir jól, þurfum helst að æfa okkur í að vinna undir truflun á nýjum svæðum.
Góu gekk einnig vel á sýningunni, hún endaði sem 2. besta tík tegundar með meistaraefni og vara cacib, en okkur vantar því ennþá eitt meistarastig í viðbót. Dómarinn var strangur en skvísan fékk góðann dóm þrátt fyrir að vera hálf feldlaus greyið.
Ég fór svo með Góu í augnskoðun um helgina, það gekk vel og allt í fínu standi þar enn sem komið er.
Askurinn er svo búinn að vera svoddan grey uppá síðkastið, fékk hársekkja síkingu á annan framfótinn og húðsýkingu sem lísti sér sem hrúður hér og þar á líkamanum. Þetta virðist allt vera að fara í rétta átt núna (7,9,13) en búið að vera frekar hvimleitt uppá síðkastið.
Allir aðlagast vel að búa í íbúðinni í kjallaranum en okkur finnst samt ekkert skemmtilegt að það sé að koma vetur :þ