Klukkan
06.01.2009 00:32:17 / cavs

Gleðilegt nýtt ár

Hér eru nokkrar myndir sem voru teknar í einum af labbitúrunum okkar í jólafríinu, Hektor, sem er 4 mánaða Íslenskur Fjárhundur og Berglind hafa verið dugleg að draga okkur með út :d


Á leiðinni í Sólheimakot, þröngt mega sáttir sitja


Alltaf eitthvað spennandi að þefa af


Góa svo sæt



Er maður sætur hnoðri eða?


Hvolpslega sætur, þrátt fyrir að vera kominn vel á sjöunda ár


Askur myndast alltaf vel, þó hann sé orðinn 8 ára og nýbúinn að fá heilablóðfall



» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 13:43:30 / cavs

Stutt og laggott

Jæja, stutt blogg svona snöggvarst.

Helstu fréttirnar núna eru af henni Góu litlu sem er á bullandi lóðaríi núna.

Skvísan er búin að vera með mér á grunnnámskeiði og við vorum að fá niðurstöðurnar um hvernig við stóðum okkur í pósti. Góa fékk 8,8 í verklega og ég fékk 10 í bóklega.
Okkur gekk voða vel á námskeiðinu og erum að spá í að skella okkur á annað eftir jól, þurfum helst að æfa okkur í að vinna undir truflun á nýjum svæðum.

Góu gekk einnig vel á sýningunni, hún endaði sem 2. besta tík tegundar með meistaraefni og vara cacib, en okkur vantar því ennþá eitt meistarastig í viðbót. Dómarinn var strangur en skvísan fékk góðann dóm þrátt fyrir að vera hálf feldlaus greyið.

Ég fór svo með Góu í augnskoðun um helgina, það gekk vel og allt í fínu standi þar enn sem komið er.

Askurinn er svo búinn að vera svoddan grey uppá síðkastið, fékk hársekkja síkingu á annan framfótinn og húðsýkingu sem lísti sér sem hrúður hér og þar á líkamanum. Þetta virðist allt vera að fara í rétta átt núna (7,9,13) en búið að vera frekar hvimleitt uppá síðkastið.

Allir aðlagast vel að búa í íbúðinni í kjallaranum en okkur finnst samt ekkert skemmtilegt að það sé að koma vetur :þ



» 2 hafa sagt sína skoðun

06.09.2008 01:37:09 / cavs

Erum enn á lífi

Ætluðum bara láta vita af okkur.

Skólinn er byrjaður á fullu aftur og við höfum einnig verið að standa í smá mini flutningum, við Guðrún og hundarnir vorum að flytja okkur niður í kjallaraíbúðina og höfum því núna heila 80 fm íbúð fyrir okkur og sér inngang.
Við erum búin að koma okkur ágætlega fyrir og þetta verður bara voða cosy, hundarnir eru allir mjög sáttir við breytinguna, enda svosem ekki langt að fara og sami garður.

Við Góa erum búnar að vera á grunnnámskeiði hjá hundaskóla HRFÍ og það er bara ofsalega gaman hjá okkur þar, búnar að mæta þrisvar sinnum og ég held bara svei mér þá að hún sé elst í hópnum okkar.

Því miður eru ekki komnar neinar myndir ennþá, en við þurfum að fara að drífa okkur í því að taka myndavélina með í einn göngutúrinn, en við erum að sjálfsögðu búin að vera mikið dugleg að fara út þrátt fyrir rigninguna undanfarið.

Það er búið að skrá Góu á sýninguna sem verður í lok september og systur hennar Hnotu og Mónu líka, ég get ekki annað sagt en að mér hlakki mikið til að sjá systurnar allar saman í opna flokknum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.08.2008 22:07:40 / cavs

Góa 2 ára

Í gær þann 29. júlí varð hún Góa okkar 2 ára

Til hamingju með Góa, Nökkvi, Hnota og Móna

 Set inn nýjar myndir af Góunni vonandi fljótlega

http://dyrarikid.is/gallery/gallerymyndir/m0124016.jpg
Hér er svo mynd af Seru með hvolpunum sínum fyrir tveimur árum síðan, rosalega er þetta fljótt að líða

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.07.2008 17:10:25 / cavs

útivera

Það er búin að vera þvílíka sólarblíðan í dag og því skelltum við okkur með hundana okkar og Ástu Maríu hunda sem ég er að passa í göngu í Sólheimakoti. 
http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Sumar2008/IMG_6502.jpg?t=1215363651
Áður en við lögðum af stað, hmmm... 6 hundar í grindinni hennar Góu, það er eiginlega of mikið.

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Sumar2008/IMG_6508.jpg?t=1215363727
Stormur, Robin og Rolf í hvolpa grindinni úti, vilja ólmir komast uppúr

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Sumar2008/IMG_6516.jpg?t=1215363779
Góa eiginlega yfir allan hamaganginn í strákunum hafin og fer bara í sólbað

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Sumar2008/IMG_6523.jpg?t=1215363824
Rolf að trufla Ask við vatnsdrykkju, Askur bítur í vör

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Sumar2008/IMG_6554.jpg?t=1215363884
Askur og Góa, brosandi í göngutúr

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Sumar2008/IMG_6557.jpg?t=1215363926
Veiiiii, Guðrún að gefa öllum hundanammi

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Sumar2008/IMG_6562.jpg?t=1215363974
Góa nennti aðeins að leika við Griffonana

Svo koma hér smá myndir teknar um daginn
http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Sumar2008/IMG_6493.jpg?t=1215364028
Gott að snæða kvöldverð úti þegar gott er í veðri

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Sumar2008/IMG_6338.jpg?t=1215364098
Patti pommi og Shih Tzu strákarnir Max og Anton í göngu um daginn

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Sumar2008/IMG_6353.jpg?t=1215364107
Patti pommi

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Sumar2008/IMG_6341.jpg?t=1215364184
Jeltsin grasæta

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.07.2008 23:45:16 / cavs

Törnin búin

Jæja, hér á þessari síðu hefur ekkert gerst í nokkra mánuði vegna anna hjá mér en mikið hefur verið að gera í skólanum svo ég ákvað að loka síðunni á meðan ég tæki þessa törn. Svo, hér er búið að vera lítið um sjónvarps gláp, tölvunotkun og aðrir óþarfa "tímaþjófar" fengu einnig að fara.

En, núna er þetta búið, fékk einkunirnar úr sumarskólanum afhentar í dag og ég er hér með búin að taka 37 einingar frá áramótum og ekki lítið stolt af því!

Í vetur byrjaði dagurinn venjulega klukkan 6:00 með góðum göngutúr með hundana og fjölskyldan sinnti þeim svo seinni partinn enda lengsti dagurinn hjá mér í skólanum frá 8.15-21:40. Eftir það kom svo 4 vikna sumarskóli, en þar var bara kennt í 2-4 tíma á kvöldin og þetta var í raun að mestu leyti sjálfsnám. Svo það var bara herþjálfun á morgnana hjá heilsuakademíunni (mæli með henni btw.) og svo bara strangt nám á dagin. Bestu dagana í júní notuðum við hundarnir tækifærið og lágum á sólbekkjunum á stéttinni fyrir utan hús með námsbækurnar og sleiktum sólina, mmmm 8)

Við Askur og Jeltsin erum búin að vera að passa Þremil "frænda" í viku, við bjuggum bara heima hjá honum og það gekk voða vel, enda Þremill orðinn tveggja ára voða prúður Vorsteh. Það var stuð á okkur þessa viku, en þó gaman hefði verið lét Þremill sko vita þegar fjölskyldan hans kom heim að hann væri nú pínu sár og vildi helst bara koma heim með mér. Svo nú þýðir ekkert annað en að reyna að sleikja drenginn upp :lol:

Hundapössunin er nú ekki búin þetta sumarið því á morgun flytjum við í viku til Ástu Maríu vinkonu til þess að gæta strákanna hennar, Stormur chihuahua og svo griffon gaurarnir Robbi og Rolf. Hugsa nú að það eigi eftir að ganga vel hjá okkur þó ég sé auðvitað að deyja úr öfund útí Ástu Maríu og fleiri að vera að fara á Heimsssýninguna! Það eru bara ALLIR að fara, nema aumingjans ég og ég vorkenni sjálfri mér alveg rosalega. Ég kem samt bókað með næst!

Sýningin um helgina var frábær, það litla sem ég gat verið á henni. Ég sýndi Prins Min Pin á laugardeginum og Erp cavalier á sunnudeginum. Prins fékk VG og þriðja sæti í sýnum flokki og dómarinn var bara voðalega ánægður með hann og gaf honum flotta dóma en skipaði honum vinsamlegast í fitun. (Lúxus að vera í fitun, vildi að einhver myndi skipa mér í fitun...) Sifjar Erp gekk svo vonum framar og varð þriðji besti rakki tegundar með meistaraefni með flottann dóm, ekki lélegt það og eigendur hans geta sko verið mikið montnir af stráknum sínum. 
Ég svo aaalveg óvart horfði á tjúann líka, þó ég hefði átt að vera heima að læra fyrir stærðfræðina, þurfti aaaðeins að skreppa inní höllina og alveg óvart gat ekki farið út aaalveg strax aftu :^) En ég missti af úrslitunum, sem var synd því ég hefði nú viljað sjá Himna ræktun vinna besta ræktunarhópin, Dínó verða 4 BIS og Eld frænda hennar Góu verða 3 í grúbbu, en við óskum þeim nú bara innilega til hamingju hér, man bara ekki efir sýningu þar sem chihuahua var að koma svona flott út !:d

Óska bara öllum til hamingju með flottan árangur á sýningunni um helgina!

Er strax farin að hlakka mikið til næstu sýningar og þar er ætlunin að Góa mæti hress og kát, nema hvað :d

Hér eru svo tvær myndir síðan í vor
http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Sumar2008/ganga25ma15hundar0171-1.jpg?t=1215009884

Askur og Jeltsin, komnir í sumarskapið og Jeltsin afskaplega létt að hafa fengið sumarklippinguna. (Ljósm. Berglind)

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Sumar2008/044-1.jpg?t=1215009528
Góa snemma í vor (Ljósm. Halldóra Lind). Hún fór í skapgerðarmat hjá HRFÍ í maí og stóðst það án athugasemda *stolt* :d


Bestu kveðjur

Halldóran sem ætlar ekki að opna eina einustu bók fyrr en í ágúst!



» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 22:22:53 / cavs

Blogg blogg

Jæja, ekki mikill tími til að blogga núna. En ég skelli hér inn nokkrum myndum frá því síðustu helgi þegar við löbbuðum hjá Helgafelli með Valdísi, Aríel og Sölku. Öldungarnir Salka og Askur voru sko lang fjörugust í þessarri göngu og ekki hægt að sjá að þau væru þau elstu í hópnum.

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Gongurmedodrum/IMG_5534.jpg?t=1203285777
Góa og Askur

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Gongurmedodrum/IMG_5528.jpg?t=1203285952
Salka og Góa

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Gongurmedodrum/IMG_5522.jpg?t=1203285987
Askur hlaupandi glaður

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Gongurmedodrum/IMG_5521.jpg?t=1203286027
Salka og Jeltsin

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Gongurmedodrum/IMG_5510.jpg?t=1203286085
Valdís og Salka

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Gongurmedodrum/IMG_5505.jpg?t=1203286122
Guðrún og Góa

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Gongurmedodrum/IMG_5497.jpg?t=1203286152
Valdís og Salka

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Gongurmedodrum/IMG_5493.jpg?t=1203286219
Salka

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Gongurmedodrum/IMG_5491.jpg?t=1203286257
Salka og Aríel

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Gongurmedodrum/IMG_5487.jpg?t=1203286292
Góa á harðarspani

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Gongurmedodrum/IMG_5484.jpg?t=1203286322
Allir saman

http://i246.photobucket.com/albums/gg103/Jeltsin/Gongurmedodrum/IMG_5523.jpg?t=1203286364
Jeltsin

Þessa helgi fórum við svo í göngu hjá Geithálsi og í Þjóðhátíðarlundi, og eftir göngurnar voru sumir (lesist Askur og Jeltsin) orðnir vel drullugir og þurftu nauðsinlega í bað báða dagana. En að baða þá í svona veðri... þeir verða orðnir skítugir aftur á morgun :|
Góa litla er orðin höllt greyið og búin að vera það í viku en við vonum að hún verði búin að lagast fyrir sýningu. Aumingjans Jeltsin er svo eitthvað skrítinn í öðru auganu núna, ræfilstuskan mín, það er bara hvert á fætur öðru núna, en hann er samt voða ánægður með lífið þrátt fyrir það kallinn.

En við kveðjum bara að sinni


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 09:03:27 / cavs

Frábær sýningar helgi

Sýningin um helgina var alveg frábær. Góa fékk sitt annað meistarastig og varð besta tík tegundar. ISCH Himna Ripp vann hana svo og varð besti hundur tegundar og Góa varð þá besti hundur tegundar 2.

 

Ekki skemmdi það svo fyrir að gotsystir hennar Góu, Vindsvala Freyja eða Hnota eins og hún er kölluð í dag varð önnur besta tík tegundar á eftir Góu með meistaraefni, ekkert smá fín stelp. Í þriðja sæti með m.efni var svo hún Tex, amma systranna (Mamma Ripps), en þær þrjár voru þær einu sem fengu m.efni í tíkunum. Móna systir stóð sig vel líka og fékk rauðann (very good) og annað sæti á eftir Góu í unghundaflokki (Hnota var skráð í ungliða og vann hann).

Svo svona af fþví að það er svo langt frá síðasta bloggi koma nokkrar myndir sem teknar voru í imillitíðnni


Góa fína


Jeltsin kjánið fékk einhverjar rassa bólgur og þufti að hafa skerm, en hann lét það nú ekki stoppa sig að hafa það gott.


Askurinn svolítið blautur, ný kominn úr göngutúr, kominn á uppáhaldsstaðinn sinn uppi í gluggakistu.


Allir saman í búrunum þeirra Asks og Jeltsins


Klippti í kringum eyrnaopið hjá Ask og Jeltsin vegna eyrnabólgna sem eru að lagast aftur, slatti af hárum sem komu þar, núna ætti aldreilis að lofta um.


Askur útii í snjónum


Góa


Jeltsin að éta snjó, en gaf sér smá stund til að líta upp fyrir myndatöku


Ahh, íkt gott að láta klóra sér


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 00:41:28 / cavs

Askur 7 ára!

8. desember 2007

Askur 7 ára!


Já í dag 8. desember er hann Askur minn orðinn 7 ára öldungur!

Jahérna, mér finnst svo stutt síðan við keyrðum alla leið til Dalvíkur að sækja þennan sæta strák í brjáluðu veðri, en þá var hann aðeins tíu vikna gamall.

Ég man þear við komum og sóttum hann, mér fannst hann fallegasti hvolpur sem ég hafði séð og trúði því varla að hann yrði minn. Ég var tólf ára og ég man að ég og systir mín vorum frammi með hundunum á meðan mamma og pabbi sátu inni í eldhúsi með ræktandanum og fóru yfir öll nauðsynleg atriði. Ræktandinn hans Asks, sagði okkur svo ýmislegt í sambandi við hann og hunda almennt. Ég man að stundum skildi ég ekkert hvað hún var að tala um þá þó ég skilji það nú töluvert betur í dag.

Við fengum betra veður á leiðinni til baka og var Askur virkilega þægur alla leiðina heim í bílnum og það heyrðist ekki bofs í honum. Við stoppuðum nú samt einu sinni til að láta Ask pissa og við vorum nú öll frekar monntin með þennan fallega hvolp sem við pössuðum svo vel, eins og hann væri úr postulíni.

Þegar heim var komið var allt tilbúið, ræktandinn hafði leiðbeint okkur vel símleiðis hvað þyrfti að vera til staðar fyrir hvolpinn þegar hann kæmi og það var að sjálfsögðu allt keypt, og meira til.

Við rúmið mitt var pabbi búinn að búa til afskaplega fína grind þar sem Askur átti að sofa. Í grindinni voru ýmsar nauðsynjar eins og búr með teppi, vatnsdallur, leikföng, nagbein og eflaust ýmislegt fleira.
Um kvöldið þegar við Askur áttum svo að fara að sofa, var hann settur í fínu fínu grindina. Askur hoppaði uppá hana og heyrðist eitt lítið ofursætt *áff*. Hann horfði á mig með stóru fallegu brúnu augunum sínum og ég tók hann í fangið. Ég man að mamma sagði "æjj, greyið, hann saknar svo mömmu sinnar, við verðum að leifa honum að sofa uppí, bara í nótt". Ég lét nú ekki segja mér það tvisvar og við Askur fórum að sofa, uppí mínu rúmi. Ég þarf svo eflaust ekki að nefna það, en þar hefur Askur sofið síðan þá.



Askur hefur alla tíð verið afskaplega þæginlegur hundur og frábært að fá eintak eins og hann svona sem fyrsta hund. Ákveðin að ýmsu leiti jú, en gott að kenna honum og eiga við hann svona almennt. Jú, hann nagaði eins og einn skó og nýja testamentið á ákveðnu tímabili og hefur alla tíð verið fyrstur til að setjast uppá stól við matarborðið þegar mamma kallar í mat, en svona, ekkert alvarlegt.

Askur fór á hvolpanámskeið hjá HRFÍ og stóð sig bara nokkuð vel.

Askur hefur alltaf fylgt okkur allt (nema erlendis auðvitað;). Hann hefur farið ýmislegt á þessum 7 árum sínum þvers og kruss um landið. Eitt sinn er við vorum á gistiheimili úti á landi varð ég veik og var rúmliggjandi þar í tvo daga og bara svaf. Askur lá hjá mér allan tímann, nema þegar aðrir fjölskyldumeðlimir dróu hann út að pissa eða fengu hann til að drekka. Hann leit ekki einu sinni við mat fyrr en ég fór að borða aftur. Þessi hundur finnur það enn í dag ef eitthvað er ekki í lagi og ef mér líður illa víkur hann ekki frá mér.

Segi svo bara, til hamingju með afmælið Askur minn, við erum búin að eiga frábær ár saman og ég vona að við fáum sem flest til viðbótar. 


Nokkrar myndir:

Askur er lengst til vinstri, hann og systkynin að fá smá sopa frá mömmu.


um 4-5 mánaða


2 ára


3 ára


4 ára


5 ára


6 ára

http://im1.shutterfly.com/procserv/47b7cc26b3127cceb124dbcdf99d00000026108AcMWbZi1ZNT
7 ára gamall, mynd tekin áðan. Miðavið útlit og hve hraustur hann enn er gæti hann þessvegna verið fjögurra ára.


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 09:30:40 / cavs

Gó'er komin heim

Núna er Góa litla loksins búin þessu lóðaríis standi og komin heim aftur og hún litlan alveg ótrúlega ánægð að koma heim. Góa hefur nú fitnað töluvert hjá henni ömmslu, en þið vitið hvernig þessar ömmur eru: "Hún var svoooo svöng greyið að ég gaf henni tvær lifrarpylsusneiðar". Um tvær lifrarpylsusneiðar og alls kyns góðgæti er nú ansi mikið auka á dag fyrir svona litla skvísu eins og Góu, sem auðvitað lætur eins og hún sé banhungruð og hafa ekki fengið að éta í viku þegar eitthvað gott er í boði. En hún verður enga stund að ná þessu af sér fyrst hún er komin á venjulegt fæði og fær að hlaupa laus aftur. Við fengum heimsókn í gær, hann Patti pommi hennar Eldbjargar kom með okkur í labbitúr og kíkti svo í heimsókn, það var alveg svaka stuð heima, Askur og Góa voru nú ekkert of hrifin af honum fyrst, en það lagaðist svo. Hér eru svo bara allir voða sibbnir og sáttir, allir nýbúnir í labbitúr og búnir að fá smá nautatippi að borða og ekki finnst þeim þau vond :D En kveðjum að sinni

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 19:48:43 / cavs

Blogg blogg

Langt síðan við höfum sett eitthvað inn hér, en það þýðir nú ekki að við höfum ekkert verið að gera, síður en svo. Reyndar alltof mikið búið að vera að gera.

Við Asku ákváðum að taka þátt í þjálfun sem er fyrir smáhunda núna einu sinni í viku og ég er alveg hissa hvað hann kann ennþá þessi elska, hefði haldið að hann væri orðinn meira ryðgaður eftir að hafa fengið litla sem enga þjálfun lengi.

Guðrún skammaði mig svo fyrir að hafa ekki sagt frá því að hún og Góa hefðu nú unnið bikar um daginn, þær fengu bikar fyrir að vera bestar í sýnum hóp í sýningarþjálfun Heimsendahunda. Þær áttu hann nú alveg skilið enda búnar að vera þvílíkt duglegar að æfa sig saman og sambandið þeirra á milli að verða frábært!

Góa litla er núna að lóða og því er hún hjá ömmu núna, hugsa svo að hún komi til með að koma svolítið þétt til baka þar sem amma heldur að hún sé alltaf svo svöng. Góa saknar strákanna sinna samt voða voða mikið (og þeir alveg að verða vitlausir þeim langar svo að hlaupa yfir til hennar). Ég get ekki beðið eftir að hún verði búin og má koma með okkur strákunum í lausahlaupsgöngutúra, en núna fær hún bara göngur um hverfið í taumi.

Hér eru svo myndir frá því úr sveitinni um daginn, en hundarnir skemmtu sér konunglega enda fullt af engu þar svo þeir gátu hlaupið lausir að vild. Einu áhyggjurnar sem við þurfum að hafa voru að Jeltsin findi sér eitthvað illa lyktandi og vellti sér uppúr því, sem hann gerði auðvitað. Jeltsin er og verður Jeltsin, en við elskum hann samt, þó hann hafi ekki fengið knús fyrr en eftir bað :D það þarf að passa svona gaura svo þeir fari ekki og fái sér svona "ilmvatn", namm namm. :S

\"\" 

Askur og Jeltsin


Askur og Góa


Góa


Neihh, þau eru öll á sömu mynd, kjurr! Horfa meira að segja öll í nokkurnvegin rétta átt. Jahérna!


Jeltsin


Askur


Góa


Góa og Askur


Aftur öll á sömu mynd


Góa


Askur


Ahh, smá bossa klór frá mömmu


Góa


Askur


Jeltsin


Jeltsin


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 20:38:38 / cavs

Góð helgi

Þetta er búin að vera alveg frábær helgi! Askurinn stóð sig eins voða vel í ungum sýnendum með henni Hildi, þau voru voða fín saman. Askur var einnig í kynningar bás á laugardeginum með Aríel og á sunnudeginum með Mirru.

Fór að vinna aðeins uppá hundasnyrtistofu á laugardagskvöldinu, það er auðvitað stór hluti af stenmingunni að vera þar.

Góa, Hnota og Móna voru allar sýndar og það má nú aldeilis segja að þær hafi verið okkur til sóma. Þær kepptu í ungliðaflokki og af fimm tíkum sem kepptu í flokknum fengu 4 fyrstu einkunn og fengu sætu dömurnar okkar fyrstu þrjú sætin, Góa í fyrsta, Hnota (Feyja) í öðru og hún Móna í því þriðja. Þær gerðu svo enn betur og fengu allar þrjár heiðursverðlaun og það má nú segja að við Guðrún höfum verið að rifna út stollti. Þær fengu því að keppa við eldri tíkurnar og í opna flokknum lennti Góa í öðru sæti með meistaraefni og Hnota litla í því fjórða. Alveg frábært hjá þeim, sérstaklega þar sem það voru nú ekki fáar tíkur að keppa við þær! Eftir að meistararnir og öldungarnir bættust í hópinn endaði Góa litla sem fjórða besta tík tegundar. Ekkert smá flott fyrir 14 mánaða gelgju, enda nóg var samkeppnin í dag!

Úmsögnin hennar var svona:
Excelent type, very smart looking bich. Feminine head with nise skull + earset. Nice eyes. Lovely neck, toplyne + tail. Nice body + bone. Good angultions. Nice coat. Excelent mover.

Hvolpar Cassiar og Jeltsins voru sýndir og einnig hún Cassie sem fékk fyrstu einkunn. Amor, Dúskur og Elara voru sýnd en Eros greyið var bara að deyja svo hann kom þess vegna ekki :( Litla greyið varð veikur og lifði það ekki af, enn er ekki vitað hvað var að. Bæði Emor og Elara fengu heiðursverðlaun og við erum að sjálfsögðu voða ánægðar með það.

Þremill sýndi sig bara ágætlega og fékk hann fyrstu einkunn og svo annað sæti á eftir bróður sínum, dómarinn sagi svo það sama og dómarinn sýðast, vantar meira utan á hann þá myndi hann líta mikið betur út. En það er eitthvað sem kemur bara með tímanum hjá honum kallinum.

En jáhh, við erum semsagt MJÖG ánægðar með helgina, bara strax farnar að hlakka til næstu sýnngar!

kv. Halldóra


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 19:16:20 / cavs

Sýningin að nálgast

Nú fer að stittast í sýningu. Góa litla er búin að vera afskaplega dugleg í sýningarþjálfunum og er hún og Guðrún á námskeiði hjá Heimsendahundum ásamt því að vera í chihuahua sýningarþjálfunum. Síðasta þjálfunin er í kvöld og það er hjá Heimsenda, alveg frábært námskeið hjá þeim og við getum sko vel mælt með þeim! Við Þremill erum einnig á námskeiðinu hjá Heimsenda og Þremli er eins og Góu alltaf að fara fram. Það er svo gaman að fylgjast með þessum ungu hundum verða betri og betri með æfingunni.

Askurinn er reyndar líka alveg óvænt að æfa sig fyrir sýningu en hann er að fara að leysa annan hund af í ungum sýnendum. Það gengur víst bara rosalega vel með hann en Askurinn er auðvitað bara bestur.

Annars voru allir hér í alsherjar dýralækniskoðun í dag, Askur og Jeltsin voru báðir að greynast með murr á byrjunarstigi, en það ætti nú að vera í lagi enda orðnir þetta gamlir. Jeltsin var mjaðmamyndaður og hann er með fínar mjaðmir (hann var samt ekki svæfður og þetta er ekki mynd sem verður send út til greiningar). Góa litla fór í hnéskeljatékk og hún er með alveg pikk fastar hnéskeljar okkur að sjálfsögðu til mikillar ánægju, fengum líka að sjá hjá henni Helgu að hún Vindsvala Móna okkar hafði farið í tékk líka um daginn og er einnig með fastar hnéskeljar. Svo við vorum bara ánægð með þessa heimsókn til hennar Helgu.

Höfum svo verið að sjá þær Mónu og Hnotu í sýningarþjálfun hjá Chihuahua deildinni, þær eru líka alltaf að verða betri og betri og Mónan er bara fædd í þetta. Okkur finnst svo æðislegt að allir hvolparnir okkar hafi fengið svona góða eigendur, hefðu ekki getað lfengið betri fjölskyldur. :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 13:55:10 / cavs

Okkur finnst rigningin góð :)

Já það er sko aldeilis búið að RIGNA uppá síðkastið! Við höfum nú samt ekki látið það aftra okkur í að fara í göngutúrana okkar og förum í góða göngutúra í rigningunni.

Á sunnudaginn fórum við með Sigrúnu, Depil, Sæunni, Elöru (Cassie var heima), Valdísi og Aríel í smá ferðalag um Suðurlandið. Við fórum á Stokkseyri og hundarnir fengu að leika sér á ströndinni þar, kíktum á Eyrarbakka, Laugarás (og dýragarðinn Slakka í leiðinni), Gullfoss og Geysi (þó hundarnir hafi ekki fengið að fara inná aðal svæðið þar) og enduðum á sumarbústaða lóðinni hennar Valdísar og co þar sem allir fengu að hlaupa og leika meira.

Við lögðum af stað klukkan ellefu fyrir hádegi og vorum ekki komin heim fyrr en að verða tíu um kvöldið. Við vorum mjög heppnar með veður og það rigndi ekkert á okkur. Askur, Jeltsin og Góa voru mjög þreytt og sátt þegar þau komu heim um kvöldið.

Fengu svo að fara með Ástu Maríu, Stormi og Robba í Sólheimakot daginn eftir og hittum þar líka Önju með Alex, Anton og Max og hana Kollu með Isabellu.

En fojj hvað svona úti cavalierar eins og Askur og Jeltsin geta orrðið skítugir, þeir eru svoooo að fara í bað um helgina.

Góa litla skellibjalla er skráð á sýninguna í október, hún verður aftur í ungliðaflokki, litla baddnið, og systur hennar ætla víst líka að mæta frétti ég og ég hlakka mikið til að sjá þær þrjár aftur saman. Þær eru allar að sjálfsögðu langflottastar í mínum augum.

Allir hvolparnir þeirra Cassiar og Jeltsins eru svo skráðir í eldri hvolpaflokk á sýninguna og mér grunar að ég verði vægast sagt stolt "amma" á þessari sýningu.

Nokkrar myndir úr ferðinni okkar á sunnudaginn:


Á ströndinni á Stokkseyri


Elara

 


Góa og Elara léku sér mikið saman. Depill elskaði að fá að sulla aðeins.


Góa


Askur og Jeltsin


Góa og Elara


Allir


Góa


Aríel


Elara og Askur, Góa að koma hlaupandi


Kisa með þrjá nýfædda kettlinga í Slakka


Guðrún og kálfarir


Svínin vou alveg að fíla Sigrúnu

Fleiri myndir hér: http://www.imagestation.com/album/pictures.html?id=2087682635

Kv. Halldóra Lind


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 18:16:41 / cavs

Sumarævintýri

Elsku Sera mín

Hvað með það þó þú hafir alltaf borað þig undir rúmteppið mitt og rótað því af rúminu í þau skipti sem ég reyndi að búa um? Það var svo gott að kúra með þér undir sæng.

Hvað með það þó þú hafir farið í ruslafötuna þegar þú hafðir færi á því og tætt niður það sem þú fannst þar og dreyft því út um allt hús, þó það væru notuð dömubindi, kaffipokar eða eithvað annað sóðalegt? Þú varst svo sæt á svipin eftirá og hallaðir undir flatt, eins og þú kannaðist ekki við að hafa gert neitt.

Hvað með það þó við skyldum stundum finna beinin þín, hundanammi og leikföng í skónum okkar? Þú varst svo glöð þegar við skiluðum þér því aftur og það var svo gaman að leika við þig.

Hvað með það þó þú hafir stundum slysað inni? Það var okkur að kenna, þú varst oftast dugleg að gera stikkin þín úti. Það var svo gaman með þér í göngutúrum og að leika úti í garði.

Hvað með það þó þú hafir ekki alltaf verið fullkomin? Það elskuðu þig allir, svo mikið, sérstaklega við fjölskyldan þín, við höfðum svo gaman að þér.

Það verður aldrei neinn hundur eins og þú. Þú hafðir þín sérkenni og þínar venjur. Askur, Jeltsin og Góa hjálpa okkur að takast á við sorgina, en það verður aldrei neinn eins og þú.

Hver á að skríða uppí til mömmu og pabba á morgnanna?

Hver á að halla undir flatt þegar við gefum frá okkur skrítin hljóð?

Hver á að passa Góu litlu?

Hver á að narta í hárið á okkur?

Hver á að kúra í kjöltunni á mömmu þegar hún les blaðið inní stofu?

Hver á að skoppa um, dilla skottinu og öllum líkamanum, henda sér á bakið og heimta magaklór í tíma og ótíma?

Hver á að koma hlaupandi samstundis þegar kallað er á þig eins og þetta hafi verið mikilvægasta kall lífs þíns?

Hver á að? Hver á að? Hver á að?.....

Þetta gerðir bara þú

Við söknum þín svo! :cry:

_____________________________

Hér eru myndir frá síðusta ferðalaginu okkar með henni Seru Sól okkar. En í sumar fóru ég, Guðrún og Sigrún með hundana okkar á Vestfirði. Við dvöldum á einum fallegasta stað á landinu eða í Önundarfirði (sama firði og Flateyri er) í litlu húsi.


Depill, Askur og Jeltsin komnir í sín búr í bílinn, en með fimm hunda og farangur fyrir þá og þrjár stelpur í fjórar nætur dugar ekkert annað en Transporter!


Góa og Sera elskan komnar í sitt búr, umkringdar farangri.

Það er EKKERT mál að fylla einn Transporter af farangri :D


Við stelpurnar komnar frammí og tilbúnar að leggja af stað í langa keyrslu. Svo þurftu auðvitað að stoppa við og hreyfa hundana á leiðinni og gefa þeim að drekka enda 6 tíma keyrsla, en þeir stóðu sig vel á leiðinni enda allt fyrirmyndar hundar.


Komnar í húsið í Önundarfirði, hér er Depill uppi á svefnblofti um kvöldið þegar við fórum að sofa.


Lítill rebbi sem við sáum á Flateyri


Það voru margir skemmtilegir staðir sem við skoðuðum á svæðinu og margir góðir staðir sem við gátum leift hundunum að hlaupa og leika. Hér koma nokkrar myndir frá ströndinni í Önundarfirði.


Askurinn


Góa og Sera að leika, ohh þeim fannst svo gaman og þetta var búið að vera svo skemmtilegt sumar. Trúi ekki ennþá að það hafi endað svona illa og við söknum Seru okkar svo mikið, mun aldrei sætta mig við það hvernig hún dó! Góu greyinu leiðist svo núna, er hálf vængbrotin eitthvað, en þær mæðgur voru alltaf saman að leika og lúlla.


Hlaupa og leika á ströndinni


Allir að leika saman


Umm, nammi handa okkur?


Depill var sá eini sem elskaði sjóinn


Jeltsin, Askur og Góa


Elskan mín litla, ef ég hefði bara vitað að þetta væri síðasta ferðalagið okkar með þér. En Sera hafði sko komið út um allt land, hún er sko búin að fara allan hringinn Suðurlandið, Austfirði, alla leið út á Langanes, Akureyri, Dalvík, Hrísey, Snæfellsnes og svo mætti lengi telja og núna í sumar toppaði hún alveg allar ferðasögurnar sínar og fór á Vestfirði líka með okkur. Við hin eigum eftir að ferðast meira um landið og upplifa allskonar ævintýri saman og þó Sera verði ekki með lengur verður hún með okkur í anda en við höfum alltaf tekið hundana með okkur allt sem við getum.
Takk litla prinsessa fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman, við söknum þín svo mikið og það er svo erfitt að halda áfram án þín :cry: Munum alltaf elska þig litlan okkar!


Askur segir: "Elsku Sigrún, takk fyrir að sýna okkur þennan frábæra stað!" Sera fékk smá kúr og knús frá Sigrúnu eftir öll hlaupin. Hún var svo mikill nautnaseggur og hafði svo gaman að lífinu, átti allt framundan.


Góa komin líka til mömmsu og Sigrúnar. Hún vildi alltaf vera með Seru og er enn í dag alltaf að leita að einhverju þó ég held að hún viti ekki alveg að hverju hún sé að leita.


Komin inn, Jeltsin þreyttur eftir daginn


Stelpunum fanst best að gera ferðatöskuna hennar Sigrúnar að bælinu sínu.


Við fengum mikla athygli á Ísafirði og reyndar hinum bæunum líka á rauða Transporternum og með hundana fimm. Það var skemmtiferðaskip á höfninni á Ísafirði þennan dag og vorum við myndaðar í bak og fyrir af útlendingunum bæði myndir og video.


Sigrún með Góu og Seru


Guðrún með Depil


Ég (Halldóra) fékk loksins að vera í mynd, er hér með Ask og Jeltsin.


Við með hundana okkar, þeim finnst æði að þvælast á Vestfjörðum :D

Fleiri myndir hér http://www.imagestation.com/album/pictures.html?id=2087980338&idx=1

 

Takk Sigrún fyrir að sýna okkur alla þessa flottu staði á Vestfjörðum, þetta var æðisleg ferð. Við erum svo ekki hættar og höldum okkar ævintýrum áfram þó þetta hafi verið síðasta hennar Seru okkar.

með kveðju Halldóra Lind Guðlaugsdóttir

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Textabox
Vinsamlegast ekki taka myndir eða annað án leyfis af síðunni.